Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
23.6.2010 | 09:12
Eru það bruðlarar sem velja lægstu vexti?
18.6.2010 | 10:39
Ákall um inngrip vegna myntlána
17.6.2010 | 12:56
Gylfi og myntlánin
9.5.2010 | 13:49
Hvað áhrif hefur hrun Grikklands á Icesave?
Ástandið í Grikklandi hefur vakið upp vangaveltur um hrun landsins og mögulega keðjuverkun sem næði til annarra Suður-Evrópuþjóða og hefði svo áhrif á efnahagskerfið um allan heim. Í umfjöllun um Icesaveskuldir hefur verið rætt um að endurheimtur af eignum Landsbankans muni nema 80-90% af skuldinni þannig að þegar upp verði staðið muni eingöngu lítill hluti þess falla á Íslendinga - mesti bagginn verði vaxtakostnaður. Forsendur þessarar spár eru spár um hagvöxt og batnandi efnahag í heiminum - hvað gerist ef allt snýst til verri vegar og við horfum fram á stærri kreppu næsta áratuginn? Það væri áhugavert ef hagfræðingar færu að setja fram einhver möguleg módel um slíkt.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2009 | 11:53
Af hverju munu Norðmenn ekki lána okkur án Icesave-skilyrða?
Það er einföld ástæða fyrir því að Norðmenn munu aldrei lána okkur norska krónu fyrr en við höfum gengið frá okkar málum við Breta og Hollendinga - það er af sömu ástæðu og þeir tóku ekki í mál að við tækjum hér upp norska krónu. Ástæðan er sú að þrátt fyrir að Norðmenn hafi tvívegis hafnað inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu vill meirihluti norskra stjórnmálamanna enn að Noregur gangi í Evrópusambandið. Það hentar því norskum stjórnmálamönnum ekki að við fáum valkosti við evruna sem gjaldmiðil og það hentar þeim ekki að skera okkur niður í snörunni sem við komum okkur sjálfir í með Icesave - þannig gætum við frestað því að taka á samskiptavanda okkar við meginland Evrópu og það myndi minnka líkurnar á að við gengjum í sambandið. Norskir stjórnmálamenn vilja að við göngum í Evrópusambandið því það eykur líkurnar á að Norðmenn geri það líka.
Fullviss að Norðmenn vilji lána | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2009 | 06:30
Brennum greiðsluseðlana á Austurvelli
Það eru undarleg rökin sem dynja yfir skuldara húsnæðislána á Íslandi. Viðskiptaráðherra talar niður til fólks í Kastljósi og segir að það hefði ekki átt að taka lánin og þeir sem veittu lánin hefðu ekki átt að veita þau. Síðan stíga hann og fleiri fram og höfða til siðferðiskenndar og löghlýðni - við eigum að borga það sem okkur ber samkvæmt samningum. Samningum á myntlánum sem blekið var varla þornað á þegar lánveitendurnir, gömlu bankarnir, tóku stöðu gegn krónunni og felldu hana jafnt og þétt með þriggja mánaða fresti þegar kom að uppgjörum og milliuppgjörum hjá þeim. Síðan afskrifa nýju bankarnir helminginn af þeim kröfum sem þeir yfirtaka frá gömlu bönkunum en ætlast til að "eigendur" íbúðahúsnæðis með neikvæða eiginfjárstöðu borgi að fullu! Verðtryggð lán okkar eru hækkuð með fölskum forsendum, neyslumynstri háþenslutímans 2005-2007 og íbúðaverði frysts markaðar sem á eftir að fara mun neðar. Ég dreg í efa að þetta með myntlánin muni reynast löglegt þegar upp verður staðið - lánasamningarnir sem nýju bankarnir tóku yfir hljóta að vera "damaged goods" og forsenda til lækkunar þeirra. Hvort tveggja, myntlánin og þau verðtryggðu, er örugglega siðlaust í þessu ástandi. Og ef ný stjórn kemur ekki með pólitíska lausn, þá er það í höndum okkar skuldaranna og borgaranna að taka af þeim ráðin einu sinni enn. Við mætum með greiðsluseðlana á Austurvöll og kveikjum í þeim. Ég ítreka - gefum stjórninni smá stund og látum svo verkin tala! Við úrtölumenn greiðsluverkfalla vil ég segja: Verkföll eru aldrei góð til skemmri tíma, hvorki fyrir þá sem fara í verkfall né fyrir þá sem verkfallið beinist gegn. Þau hafa þó verið nauðsynlegt tæki til að skapa það velferðarkerfi sem hér er til staðar og afleiðingar greiðsluverkfalls sem byggir á réttlátum kröfum er á ábyrgð þess sem það beinist gegn.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.4.2009 | 15:26
...að kjósa með buddunni
Ekki er neinn skortur á hugmyndum um af hverju VG fékk mun minna fylgi í kosningunum en skoðanakannanir gáfu til kynna. Að mínu mati stendur ein upp úr. Við gefum upp skoðanir í skoðanakönnunum út frá hjartanu en í kjörklefanum ræður buddan. Einhversstaðar heyrði ég því fleygt að skoðanakannanir um afstöðu gagnvart inngöngu Dana í Evrópusambandið hefðu ávallt verið á þá leið að meirihluti væri andvígur - bæði fyrir og eftir að þeir samþykktu það í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef það er rétt, styður það þessa hugmynd.
5.12.2008 | 23:03
Í kjölfar kommúnisma og frjálshyggju ... og Davíð og Geir
Þegar kommúnisminn hrundi sögðu hörðustu kommúnistar að kommúnisminn í Sovétríkjunum sálugu hefði ekki verið alvöru kommúnismi heldur eitthvað allt annað. Það er áhugavert að heyra í hörðustu frjálshyggjupostulunum í dag: Þetta var ekki alvöru frjálshyggja ... líka bara eitthvað annað.
Svo er komin upp áhugaverð staða hjá Sjálfstæðisflokknum núna. Skjaldborg sjálfstæðismanna um Davíð stafar auðvitað af því að arfleifð hans er stór hluti af arfleifð Sjálfstæðisflokksins. Það útskýrir auðvitað ótrúlegt þanþol þeirra gagnvart seðlabankastjóranum. Eftir að Davíð hótaði Geir með pólitískri endurkomu er komin upp sú staða að arfleifð Geirs er að veði - ef hann bregst ekki við þessu hefur hann verið algjörlega niðurlægður. Geir þarf því að velja, og hann getur aðeins valið eitt af tvennu: eigin arfleifð eða Davíðs.
13.11.2008 | 12:12
Davíðsarmur Sjálfstæðisflokks - Andstaða við Evrópusambandsaðild
7.11.2008 | 19:15
Svört spá seðlabanka - spá eða afleiðing eigin stefnu?
Eldri færslur
- Mars 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar