Færsluflokkur: Bloggar
1.12.2008 | 23:19
Davíð Oddson - Yfirumsjón gjaldeyrisskömmtunar ríkisins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 22:10
Um pólitíska ábyrgð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2008 | 00:29
Hið nýja landslag
Ég upplifi oft ákveðna tilfinningu þegar ég kem heim til Íslands eftir veru í fjarlægum og ólíkum löndum. Um leið og ég geng út af Leifsstöð og við mér blasir fjallasýnin finn ég yfirleitt hvernig slaknar á einhverju innra með mér - ég er kominn heim, heim í eitthvað kunnuglegt landslag sem samsvarar "landslagi" innra með mér. Ég finn fyrir sambærilegri tilfinningu í dag gagnvart því samfélagi sem var hér á landi fyrir ekki svo löngu. Þetta samfélag var orðið mér framandi og í dag finnst mér ég kominn heim í kunnuglegra "landslag". Hér er þrátt fyrir allt að komast á samfélag með aðeins meira jafnræði og jöfnuði, nær því sem var og sem á betur við í svona fámennu landi. Laun hinna nýju bankastjóra eru t.d. eitthvað sem ég get skilið og haft skoðun á og jafnvel hneykslast yfir - þær upphæðir sem viðgengust áður ... maður klóraði sér bara í hausnum yfir þeim, tengdi ekki við þær. Þetta er kannski dýru verði keypt, en vel þess virði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2008 | 22:05
Georgíu launaður greiðinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 00:15
Um gullgerðarlist af ýmsum gerðum
Á undanförnum áratugum hafa komið fram á Íslandi, sem og í öðrum löndum, fyrirbæri sem byggjast á því að plata fólk einhvers konar nútímaafbrigði af gullgerðarlist sem var stunduð til forna. Það sem þessi fyrirbæri eiga sameiginlegt er afneitun á einni meginforsendu vísindanna; að eitthvað geti orðið til úr engu. Ein einfaldasta birting þessa fyrirbæris kom fram hér á landi fyrir nokkrum áratugum; í keðjubréfum sem gengu manna á milli þar sem fullyrt var að ef keðjan væri ekki rofin myndu allir græða og stutt með einföldum reikningsdæmum sem voru þó aldrei reiknuð til enda. Nokkrum árum síðar mætti einn magnaðast snákaolíusölumaður Íslandssögunnar, Kári Stefánsson, og seldi landsmönnum draum um eilífðargróðavél knúna af erfðamengi landsmanna, vél sem er núna er á síðustu dropunum. Kári notaði yfirbragð vísindanna til þess að ginna þúsundir landsmanna til þess að taka þátt í fjárfestingu sem var kynnt sem örugg þrátt fyrir að vera í hæsta áhættuflokki sem fjárfesting. Vissulega áhugaverð vísindi en vafasöm fjárfesting. Kári kemst þó ekki í hálfkvisti við útrásarvíkingana sem byggðu stærstu gullgerðarvél sem byggð hefur verið á Íslandi og tókst að flækja hvern einasta Íslending í plottið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2008 | 23:56
Kreppan og Kremlarbóndinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2008 | 22:46
„Það er morðingi í stofunni“
Það er morðingi í stofunni, sagði lítil stúlka af kikiyu-ættbálki við móður sína þegar hún heyrði aðra litla stúlku af tala mál katenjin-ættbálksins við móður sína inni á hárgreiðslustofu í Nakuru í Kenía. Hún var nýkomin inn og ætlaði í klippingu en sneri við og hefur ekki komið aftur á þessa hárgreiðslustofu. Fólk af katenjin-ættbálkinum hafði brennt hús hennar og myrt ættingja hennar í ofbeldisöldunni sem gekk yfir Kenía eftir kosningarnar um síðustu áramót. Þetta er ein af þeim sögum sem ég heyrði á sjálfboðaliðanámskeiði sem ég hélt í Kisumu í Kenía um miðjan september. Umræðuefnið var andofbeldi, heimspeki þess og aðferðarfræði. Hluti af því felst í að fólk segir frá reynslu sinni af ofbeldi. Flestar sögurnar voru mun verri, fólk hafði ótrúlegar sögur að segja, en einhverra hluta vegna sat þessi í mér. Sú sem sagði frá rak hárgreiðslustofuna, hún er ung kona með sem hefur þurft að ganga í gegnum ýmislegt. Sem unglingur stundaði hún vændi um langa hríð til þess að framfleyta yngri systkinum og þurfti að þola margvíslegt ofbeldi, en vinnur nú í sjálfboðavinnu við að hjálpa stúlkum sem eru í svipaðri aðstöðu og hún var.
Nokkrum dögum síðar heimsótti ég Little Bees-skólann í slömmi í Nairobi, en systir mín og móðir hafa safnað fé til að byggja upp skólann sem hefur gerbreytt ásýnd nánasta umhverfis hans. Þegar við vorum að ganga frá Little Bees sagði forstöðukonan, Lucy, mér hvaða götur hefðu tilheyrt hvaða ættbálki: Þessi gata tilheyrði Kikyum, þessi Luo, o.s.frv. Fjöldi fólks var drepinn á þessum götum þegar það neyddist af einhverri ástæðu til að fara um svæði andstæðinganna. Á götunum var iðandi mannlíf fólks af öllum ættbálkum undarleg tilhugsun að fyrir 8-9 mánuðum skildi þetta sama fólk hafa verið að reyna að drepa hvert annað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.9.2008 | 21:35
Hvar myndu krókódílar staðsetja himnaríki?
Ég ætlaði að vera byrjaður að blogga nokkru fyrr eftir bilað sumar í vinnu sumarið klárast en bilunin ekki ... fyrr en núna (krossa puttana) Eins og áður segir er ég nýkominn frá Kenía og Indlandi. Í flugvél Kenya Airways á leiðinn frá Bombay til Nairobi sóttu að mér eftirfarandi þankar:
Undanfarna daga höfum við verið í Tamil Nadu að blanda geði við innfædda á námskeiðum og heimsóknum. Það sem vakti bloggneistann hjá mér var nokkuð sem ég hef verið að þýða í ferðinni; bókmenntaleg umfjöllun um Gleðileik Dantes. Ég vissi í grófum dráttum um hvað hann snýst: Þar segir frá ferð Dante og Virgils um heima handanlífsins, sem Dante flokkar í þrjú meginsvið og hvert þeirra í nokkur undirsvið. Á hverju sviði dveljast sálir sem þar hefur verið skipað í samræmi við þær syndir sem þeir hafa ástundað. Í þessum kafla eru þeir félagar á rölti á milli logandi grafhýsa sem geyma trúleysingja og villutrúarmenn. Í umfjölluninni kom fram áhugaverð skilgreining á helvíti og himnaríki sem er samofin heimi Dantes. Í víti eru menn fastir í óbreytanleika, horfa til fortíðar því þeir hafa ekkert nema minningar sínar sem eru á einhvers konar hringspólun hjá þeim að eilífu. Hjá sálum í himnaríki er hins vegar framtíðin til viðmiðunar og án þess að það sé sagt, finnst mér gefið í skyn að þar sé möguleiki á einhvers konar breytingu einhvers konar frelsun. Sem líkingarsaga um mannlegan veruleika er þetta áhugaverð nálgun. Það hafa verið skrifaðar greinar um hvernig vitundin túlkar framtíðina sem upp og fortíðina sem niður. Stafar af frekar einföldu gangverki: Við vöxum upp framtíðin er þ.a.l. uppi. Sem vekur aftur á móti pælingar um lífverur eins og krókódíla sem vaxa á lárétt. Hvar myndu krókódílar staðsetja sitt himnaríki?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.9.2008 | 10:29
Sumarfríi lokið
Jæja, þá er löngu bloggsumarfríi lokið - stórviðburðir dagsins: KJ byrjar að blogga aftur og Glitnir er orðinn ríkisbanki. Manni hlýnar í hjartarætur að vita til að gamli pilsfaldakapítalisminn er samur við sig og lifir af allar málamyndafrjálshyggjupælingar.
Annars kom ég frá Kenía og Indlandi á þriðjudagskvöldið en maginn á mér lenti ekki fyrr en í gær. Geri grein fyrir hápunktum ferðarinnar hér á næstu dögum... Meðfylgjandi mynd er tekin eftir námskeið sem við héldum í Chennai í upphafi ferðarinnar um húmanískt sjálfboðaliðastarf. Með mér á myndinni eru fulltrúar ýmissa félagasamtaka auk ferðafélaga minna: Höddu Bjarkar og Mögnu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2008 | 08:54
Stytta lagið og lengja söngvarann
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Mars 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar