15.11.2010 | 23:09
Réttindi fólks gagnvart lögreglu og dómsvaldi verði tryggð
Í flestum ef ekki öllum samfélögum í dag er hluti af skilgreiningunni á ríki sú að það sé eini aðilinn sem hefur rétt á beitingu ofbeldis innan sinna landamæra. Þannig liggur ofbeldishótun að baki öllu laga- og reglugerðargangvirki ríkisins. Ef við borgum ekki skattana, ef við brjótum umferðareglur eða önnur lög landsins getur ríkið beitt okkur ofbeldi tekið af okkur fé, eignir eða frelsi okkar. Þegnar hafa ekki þennan rétt þeir verða að leita réttar síns í gegnum stofnanir ríkisins. Þetta ofbeldi er réttlætt með því að það sé nauðsynlegt til að halda ríkinu saman og koma í veg fyrir upplausn þess. Þessi réttur ríkisins til ofbeldis er þó yfirleitt nokkrum takmörkunum háður. Þannig þarf dómsvaldið alla jafnan að hafa milligöngu um beitingu ofbeldisins, fólk er talið saklaust þar til sekt hefur verið sönnun og hafi fólk hreina samvisku á að ekki að þurfa að eiga það á hættu að verða beitt ofbeldi með því að það sé tekið til yfirheyrslu eða frelsi þess takmarkað á annan hátt. Lögreglan þarf að hafa rökstuddan grun um afbrot til þess að beita slíku ofbeldi. Á dögum Rögnu Árnadóttur í sæti dómsmálaráðherra voru lögð drög að því að breyta því fyrirkomulagi, með því að leyfa forvirkar rannsóknarheimildir, en sem betur fer hafa þau áform verið lögð til hliðar a.m.k. að sinni.
Til staðar er tilhneiging í öllum stofnunum til að reyna að efla völd sín og áhrif og þ.a.l. túlka raunveruleikann þannig að sú túlkun styðji við slíkt. Þannig er t.d. hentugt að tala um aukningu glæpa í tengslum við vændi þegar hegðun sem var eitt sinn lögleg er gerð ólögleg. Það þarf ekki að vera um neina breytingu á atferli að ræða þvert á móti eru líkur á að tíðni slíks atferlis hafi minnkað, en samkvæmt tölum hefur þá glæpatíðnin aukist. Það að ákveðin bifhjólasamtök ákveði að ganga til liðs við erlend bifhjólasamtök sem hafa illt orð á sér þýðir í orðræðu lögreglunnar að skipulögð glæpastarfsemi sé að festa rætur sínar hér án þess að nokkuð hafi endilega breyst í starfsemi áðurnefndra bifhjólasamtaka eða að einhverjir hafi bæst í þeirra hóp erlendis frá.
Þessi orðræða er ekki ósvipuð orðræðunni í tengslum við hryðjuverkaógn og öryggismál. Á undanförnum árum er búið að ganga langt, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, í að veita lögreglu og öryggisþjónustu víðtækari heimildir og völd sem skerða persónulegt frelsi og mannréttindi þegnanna. Í Bretlandi var lífi fólks gjörbylt vegna atburða sem vissulega voru hræðilegir, en til að setja hlutina í samhengi þá dóu í hryðjuverkaárásinni jafn margir og deyja á tveimur dögum í umferðarslysum í Bretlandi. Á Spáni var tekin ákvörðun um að láta hryðjuverkaárásirnar sem urðu á Spáni um svipað leyti ekki verða til að stjórna lífsháttum fólks túlkunin var sú að slíkt bæri vott um sigur hryðjuverkamannanna.
Eins og áður segir er það tilhneiging stofnana til þess að efla völd sín og áhrif. Það er hins vegar hlutverk stjórnmálamanna að dansa ekki eins og dáleiddar hænur eftir orðræðu þeirra og lepja hana upp gagnrýnislaust. Stjórnarskrá sem tekur af skarið með mannréttindakafla með skýrum ákvæðum sem tryggja mannhelgi og lágmarkar ofbeldi ríkisvaldsins hjálpar til þess.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Mannréttindi, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Mars 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.