Færsluflokkur: Heimspeki
15.11.2010 | 01:23
Um hlutverk forsetans
Ég man eftir því, fyrir rúmlega tveimur áratugum þegar ég las stjórnarskrána í fyrsta sinn, að lýsingin á hlutverki forseta kom mér spánskt fyrir sjónir. Það var eins og að hafa talið sig vera að horfa á leikritið Skugga Svein og uppgötva svo skyndilega að handritið var Íslandsklukkan eða eitthvað annað leikrit. Lýsingin var af töluvert pólitískara hlutverki en ég hafði vanist að sjá í verki; forseti getur lagt fram frumvörp, skipað ráðherra og embættismenn, svo eitthvað sé nefnt. En svo er klikkt út með því að forseti láti ráðherra framkvæma vald sitt, sem er ákveðin þversögn í sjálfu sér.
Nú hef ég ekki miklar skoðanir á því hvert hlutverki forsetans í stjórnsýslunni á að vera - mér hefur hingað til þótt það helst hafa mótast af löngun fólks til að hafa konung til að klippa á borða og halda hátíðarræður. Kosningar til forseta hafa mér þótt frekar vandræðalegar til hvers var forseti að sækja lýðræðislegt umboð til fólksins ef hann var í raun valdalaus gaukur í klukku eins og Bubbi orðaði það umboð til hvers? Núverandi forseti braut blað í sögunni með því að nota og virkja málskotsréttinn fræga. Ég man eftir umræðunni í tengslum við framboð Sigrúnar Þorsteinssonar til forseta, árið 1988, sem hafði sem sitt helsta baráttumál að virkja málskotsréttinn flestir lögspekingar töldu hann þá óvirkan eða jafnvel ónýtan. Ég vil að fólkið í landinu geti sjálft knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál, ef nógu margir fara fram á slíkt. Þar með verður aukaatriði hvort forseti hafi slíkan málskotsrétt.
Ég held þó að andstaða almennings við að leggja niður forsetaembættið yrði of mikil og því þarf að finna skilgreiningu og skipan á því sem er sjálfri sér samkvæm - forseti Íslands getur verið sameiningartákn og rödd samvisku þjóðarinnar - en valdamikill verður hann ekki.
Heimspeki | Breytt 16.11.2010 kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2009 | 14:52
Af hverju ættum við að hjálpa öðrum
7.3.2009 | 09:46
Að morgni forvals
Vaknaði í morgun með hugsanir um nokkra hluti sem ég hefði átt að gera í gær, hefði getað gert betur. Ákvað svo að vera sáttur - ég gerði mikið í gær, miklu fleiri hluti en ég gerði ekki og flest gerði ég betur en illa. Búnir að vera áhugaverðir dagar. Fékk staðfestingu á að fullt af fólki sem ég hef ekki séð eða heyrt í lengi er enn góðir vinir mínir, fólk sem hefur einhvern tímann slest upp á vinskapinn hjá er samt vinir mínir þrátt fyrir allt. Og svo hef ég kynnst fullt af áhugaverðu og spennandi fólki. Þrátt fyrir að það sé einhver handavinna í dag og púsl, þá er aðal "aksjónin" búin og ég ætla að njóta dagsins, hitta fólk í kosningaskrifstofu VG og vera á góðum stað innra með mér. Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta forval fer en ég veit það eitt að ég er sáttur.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2009 | 14:11
Nýr sími
Eldri færslur
- Mars 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar