Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010
23.3.2010 | 15:04
Skötuselurinn
Mörgum kann að þykja Samtök atvinnulífsins gera mikið veður út af skötuselsfrumvarpinu svonefnda. Það er auðvitað ljóst að LÍÚ stendur þarna að baki og þeir vita vel hvað er undir. Átökin um þetta frumvarp er hvorki meira né minna en fyrsta orrustan um hverjir muni eiga kvótann í framtíðinni - þjóðin eða nokkur fyrirtæki og einstaklingar. Fyrir okkur sem erum á móti núverandi skipulagi er auðvitað geysimikilvægt að skapa fordæmi, jafnvel þótt það snerti aðeins eina fisktegund - að búa til nýtt kerfi við hlið þess gamla svo fólk geti borið saman og hætti að taka núverandi kerfi sem sjálfgefið. Að sama skapa vita talsmenn útvegsmanna hve hættulegt slíkt fordæmi er þeirra hagsmunum og leggja því allt undir - þar með talinn stöðugleikasáttmálann þar sem hvergi er minnst á skötusel.
Færslan á kvótanum frá útvegsmönnum til þjóðarinnar er eitt mikilvægasta þjóðþrifamál um þessar mundir. Ég segi "frá útvegsmönnum" en í raun er eignin á kvótanum að miklu leyti hjá bönkunum eftir braskið um árið og þ.a.l. í höndum erlendra kröfuhafa sem eignuðust stærsta hlutann í þeim. Nú ríður á að stjórnin stígi fast niður - hún er með lýðræðislegt og siðferðilegt umboð til þess!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2010 | 12:32
Kenía
Helgin fór í sjálfboðaliðanámskeið með fólki frá Kisumu, Nakuru, Suba og Íslandi. Mjög blandaður hópur en frábær stemning. Þegar námskeiðinu lauk á sunnudag var haldinn fundur með nokkrum hópstjórum í Kisumu. Farið var yfir sameiginleg verkefni; fósturbarnaverkefnið, sjálfboðaliðaverkefnið, plúsar og mínusar og öll hugmyndin skýrð betur.

Þriðjudagsmorguninn fór Gunnar með Janess til Suba til að skoða nokkur verkefni við Viktoríuvatnið. Ég átti flug til Nairobí klukkan 11.15 en þurfti fyrst að ganga frá skírteinum vegna námskeiðsins. Fengum að prenta þau í heilsugæslunni þar sem Anne Lauren vinnur. Geoffrey læknir er hættur að vinna þar en hitti ungan lækni sem hafði tekið við hlutverki hans. Ég sagði honum að Geoffrey hefði stundum farið með mig á dansstaði í Kisumu og spurði hann hvort hann ætlaði ekki að taka við því hlutverki líka. Hann hló við og sagðist myndi gera það næst. Hitti þar líka ungan og greindan strák að nafni Felix. Hann fær stuðning frá Íslandi og Anne sýndi mér dagblað sem innihélt lista yfir þá sem náðu bestum árangri í samræmdum prófum upp úr Secondary School hann var þar nr. 67 á svæðinu er einn af 400 efstu nemendunum af 300.000 á landsvísu. Spjallaði aðeins við hann hefur áhuga á tæknifræðinámi háskóla. Flaug til Nairobí og hitti Jökul og Súlu á hótel SixEighty. Þau höfðu gist í Little Bees um nóttina fyrir misskilning samkvæmt plani áttu þau að vera á hóteli. Þau létu ágætlega af reynslunni í Little Bees ekki amalegt að geta sagst hafa varið nótt í slömmi í Nairobí! Þar sem engum peningum hafði verið varið í hótel þá nótt var svigrúm til að gista á SixEighty hótelinu þá næstu. Fórum yfir plúsa og mínusa úr Indlandsdvölinni áður en við tókum okkur smá hvíld. Um kvöldið fórum við yfir götuna á Simmers þar sem borðuð var steik og dansað. Sýndist Jökull nokkuð ánægður með athyglina sem hann fékk. Ég rölti upp á herbergi upp úr ellefu en þau urðu eftir.

Hittum Josephine hans Ragga um morguninn og vinur hennar skutlaði okkur upp á rútustöð þar sem við tókum express matatu til nairobi. Hafði bókað hótel sem heitir Mooreland hotel sem ég hafði aldrei gist á áður. Það er stutt frá miðbænum en verðið á herbergjum hóflegt. Við máttum engan tíma missa, hoppuðum upp í leigubíl og fórum á Little Angels Network ættleiðingamiðstöðina. Það hafa verið einhver vandamál í samskiptum Alþjóðlegrar ættleiðingar á Íslandi og Little Angels Network og fengum við þar skýringu að allt væri fast í kerfinu, ekki bara málefni Íslendinga, heldur einnig tveggja annarra stofnana frá Norðurlöndunum. Þegar því var lokið fórum við aftur á hótelið og fengum okkur aðeins að borða áður en Mama Lucy kom og náði í okkur til að fara með okkur á Little Bees. Í Little Bees var vel tekið á móti okkur eins og venjulega. Við vorum mættir um hálf fjögur á föstudegi og skólastarf í fullum gangi í hverri kytru. Á efri hæð nýju byggingarinnar voru eldri nemendur og eingöngu karlkennarar. Kvenkennararnir hafa neitað að ganga upp stigann þar sem hægt var að sjá undir pilsin þeirra á leiðinni upp. Nemendur í næstefsta bekk tóku á móti okkur með íslenskum orðum sem Jökull og Súla höfðu kennt þeim nokkrum dögum fyrr. Eftir kynningarferð um skólann hélt fimleikadeild skólans sýningu, nokkrir ungir drengir tóku heljarstökk afturábak og sýndu ýmis atriði allt á ósópuðum steyptum bletti á skólalóðinni (hugsaði með hryllingi með hvað myndi gerast ef þeir dyttu á hausinn). Þar á eftir var tískusýning hjá nokkrum stúlkum sem gengu með miklum tilþrifum fram og aftur og báru sig ótrúlega flott. Í lokin gengu þær allar í einni röð undir taktföstu lófataki en í bakgrunni fléttuðu tveir strákar afríkönsk stef inn í taktinn slógu þau á málmsúlur skólans.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Mars 2012
- Ágúst 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 10388
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar