Um mælikvarða menninga

Tilefni þessa bloggs eru umræður sem hafa orðið í kjölfar heimsókna tveggja gagnrýnenda islam, þeirra Mariam Namazie og Ayaan Hirsi Ali. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki haft tíma til að lesa neitt að ráði eftir þær stöllur, en hef þó rekist á nokkrar helstu fullyrðingar sem hafðar hafa verið eftir þeirri síðarnefndu. Þær birtast m.a. í grein Jóns Kaldals "Mikilvæg skilaboð" frá 11. september s.l. Þar má finna setningu eins og: „Sú trú að öll menning sé jafngild er á villigötum" sem er að mér skilst meginþemað í hennar málflutningi. Nú er hugtakið menning svo flókið og margslungið fyrirbæri - og líka svo stórt fyrirbæri - að það er erfitt að ætla að láta einhverja merkimiða "betri" eða "verri" tolla á því af einhverju viti. Það er hægt að mæla ákveðna hluti, eins og t.d. tækniþekkingu, framleiðni, o.s.frv. en ekki veit ég til þess að neinn sé að tala um að nota þá mælikvarða í þessari umræðu. Ayaan Hirsi Ali leggur til sinn mælikvarða - þá grundvallarhugmyndafræði vestrænna ríkja að leitast við að jafna sem mest réttindi karla og kvenna til menntunar og tækifæra á lífsleiðinni. Ekki slæmur mælikvarði, þótt hann sé að mínu mati ekki nægilegur til að alhæfa um heilu menningarnar. Sögulega er stutt síðan samkomulag varð um þetta á Vesturlöndum, fór ekki að gerast að neinu ráði fyrr en á síðustu öld, og minna má á að konur fengu atkvæðisrétt á Tyrklandi árið 1934 og í Írak, undir stjórn Saddam Husseins, fengu konur að kjósa og menntun kvenna stórjókst. Síðarnefnda dæmið er gott dæmi um hvað svona mælikvarðar eru vandmeðfarnir. Daglega eru 3 konur drepnar af kristnum eiginmönnum sínum í Bandaríkjunum - hvað segir það okkur um bandaríska eða vestræna menningu? Ég er aðeins kunnugur umræðum um karlaveldið og búrkuna - ef maður samþykkir forsendur þeirrar fullyrðingar að karlaveldið sé að baki því að múslimskar konur neyðist til að ganga með búrku þá verður maður að samþykkja mótrök íslamskra kvenna; að karlaveldinu á Vesturlöndum megi kenna um þann tíma sem vestrænar konur verja fyrir framan spegilinn að mála sig - þeirra búrka sé ekki síður þung.

Auðvitað eigum við að fordæma öll mannréttindabrot og allt ofbeldi - en menning er miklu stærra en það - hún er siðir, venjur, tungumál - langmest þættir sem fela ekki endilega í sér ofbeldi. Við þurfum að greina þarna á milli og vanda okkur í orðræðunni - annars verða hugtökin merkingarlítil. Við þurfum að gera okkur grein fyrir að það er enginn eðlismunur á ofbeldi skítugs og ómenntaðs hirðingja í Afganistan sem umsker dóttur sína og þeim verknaði sem ungur, vel klipptur hermaður fremur er hann þrýstir á hnapp sem sendir eldflaug á hús í mörg hundruð kílómetra fjarlægð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

ég myndi segja að þú þyrftir aðeins að kynna þér þessar tvær konur betur, þú ert ekki alveg að ná því sem þær eru að reyna að koma á framfæri. það er ekki bara kvennabarátta að t.d ungum múslimum í Evrópu standi til boða þau sjálfsögðu mannréttindi að geta fengið að velja sína trú eða þessvegna trúleysi, einsog jafningjar þeirra, án þess að fá morðhótanir - sem alveg eins gæti verið fylgt eftir, ekki skortir fordæmin. Það er meðal þess sem þær eru að reyna að sýna frammá, það má ekki afsaka það sem er klárlega óréttmætt, í nafni einhverrar menningar eða trúarbragða. 

halkatla, 18.9.2007 kl. 01:34

2 Smámynd: Kjartan Jónsson

Alveg rétt, ég er ekki búinn að kynna mér mikið málflutning þessara kvenna og ég algerlega sammála síðustu fullyrðingunni - það má ekki afsaka það sem klárlega óréttmætt í nafni menningar eða trúarbragða. Ég er bara að benda á að við eigum að hafna ofbeldinu - ekki heilu menningunum með alhæfingum.

Kjartan Jónsson, 18.9.2007 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kjartan Jónsson
Kjartan Jónsson
Höfundur starfar við íslenskukennslu og þýðingar. Auk þess stundar hann ýmis félagsstörf, sjá multikulti.is

Nýjustu myndir

  • DSC00594
  • DSCN2508
  • ...img_0395
  • ...dsc02790
  • ...dsc02765

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 10201

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband